Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

11. febrúar 2007 klukkan 13:30

Ég er eins og brennt popp eftir þessa helgi...ætti eiginlega að vera sofandi.

Fór í kveðju-partý í gær hjá Ebbu og Hilmari, en þau eru að fara flytja til köben á fimtudaginn. Svo var auðvitað kíkt smá í bæinn eftir það..

En jú mér tókst að vakna til að fara í afró dans í gærmorgun:) Eftir tímann fórum við svo og fengum okkur mat á salatbar Eika. Svo fundum við okkur sitthvorn kjólinn á kílómarkaðinum í spútnik:)

En vitið hvað????? Ég er að fara í klippingu og litun næsta miðvikudag, ætla að prufa að fara á hárstofuna GEL, ætla bara setjast í stólinn leyfa þeim að ráða og vona það besta, hvað úr því mun koma:D

08. febrúar 2007 klukkan 20:45
Takk fyrir kommentin Sóla og Ellen!!:) Mun pottþétt tékk á súkkulaði dæminu;)

Þetta var mjög erfiður dagur í vinnuni í dag...það voru bara ALLIR veikir nema ég og 2 aðrir. Þvílíkt álag og engin matarpása. Settist EKKERT niður á milli 7 og 3.

Þegar ég var búin að vinna klukkan 3 settist ég loksins niður...ahhh það var sko næs:) Þrátt fyrir mikla þreytu skellti ég mér í ræktina með Önnu Lindu klukkan hálf 4, ótrúlega duglegar:)

Eftir æfingu var farið í kaffi og og pönnsu á kaffivagninum og tekið nokkrar myndir á skipum og húsum...og bílum:) Það er alltaf jafn huggulegt að fara þangað.

Núna gæti klukkan alveg verið þess vegna 2 að nóttu til mín vegna (er svo syppinn).
En ég fer að sofa með bros á vör eftir huggulegan en erfiðan dag í vinnu:P

En heyr tomorow is Friday...jjeeeee!!!
Og afródans tími á laugardags morgun klukkan 9:30, Do you think I can do it?:)

Allar þessar heimsóknir....

07. febrúar 2007 klukkan 15:49

en ekki ein mörg komment:,,(

06. febrúar 2007 klukkan 21:28
Hvernig getur maður endað á sirkus í bjór? þegar maður ætlaði bara fara út og taka ljósmyndir!?? Einhvern veginn þá tóskt mér það nokkuð vel!

P.s. Ég er orðinn hrædd um að ég sé farinn að valda slysum...þið sem hafið séð myndina Amelie...atriði þegar hún hélt hún væri að olla bílslysinu með myndavélinni.
   Ég held að ég sé af því með því að keyra heima frá foreldrum mínum. Bæði á leiðinni heim á sunnudaginn og í dag voru löggu og sjúkrabílar =árekstur:/
Ætti kannski bara halda mig í 101?

Skemmtileg vika?!

05. febrúar 2007 klukkan 23:11

Hvernig væri......

að fara í göngutúr í miðbænum og taka myndir af t.d. uppáhalds stöðunum sínum og áhugaverðum hlutum...

að kíkja í einn kaffibolla á kaffivagninum með gömlu sjóurum, það er alltaf einvhað svo notalegt að setjast inn á kaffivagnin. Sérstaklega ef maður fær sæti við gluggan sem snýr út að sjónum.

að framkvæma það sem þú ætlaðir að vera löngu búin að framkvæma..... sem tæki reyndar jú meira enn viku...en einhvers staðar verður maður að byrja ekki satt:)

Þess vegna ætla ég að fara út núna og taka myndir t.d!

Endurnærð eftir rólega helgi.

05. febrúar 2007 klukkan 03:34
Þessa helgi gerði ég mest lítið annað en að gera ekki neitt!:)
Fór á mokka kaffi að hitta Guðnýju eftir vinnu á föstud, lá svo reyndar veik fösudkv:/
En leið strax betur á laugardeginum:)

Tókum sex and the city videó kvöld á laugard, ég, Sóla,Anna Linda og Gugga....og borðuðum vel að nammi yfir öllum þessu 7-10 þáttum sem við náðum að horfa á held ég:D

Á leiðinni heim í kvöld kom sá ég bílinn sem hefði lent í árekstri á Miklubraut fyrr í kvöld, fékk alveg fyrir hjartað. Þvílíkt sem bíllinn var illa skemndur!
Ég vona svo innilega að það hafi enginn slastast lífshættulega.

Annars er það bara aftur video í kvöld fyrir svefnin...ein önnur vinnu vikan framundan...og valintínusar dagur í næstu viku sem þýðir að Rosie vinkona mín í Boston á afmæli...og ég fer í klippingu..JEIJ

Svo styttist óðum í Ameríkuna...já segjið svo að lífið sé ekki skemmtilegt!!:D

Eigið frábæra viku, og munið...ef þið smælið framan í heiminn þá mun hann smæla framan í þig, eins og Megas segjir;)

31. janúar 2007 klukkan 01:53
Ótrúlegt en satt, þá er ég búin að vera fylgjast smá með handboltanum. Ekki annað hægt heldur, strákarnir okkar standa sig alveg eins og hetjur!

En Anna Linda kom í geimsókn í vinnuna í dag til mín, og keypti sér kort í world class. Svo stolt af stelpunni!:)
Við ætlum fara saman í ræktina á morgun klukkan 3, ætla láta hana þræla út..hahah:)

Svo er það babalú á morgun klukkan hálf 8!

Endalaust stuð..jeeiijjj:P

28. janúar 2007 klukkan 18:23
Somtimes it feel´s like Im falling down the ocean....

Notaleg helgi..

27. janúar 2007 klukkan 21:48
Í gær var ég bara í kósí upp í sveit að borða góðan mat hjá foreldrum mínum. Ótrúlega næs að komast stundum út úr 101:)
Svo núna á eftir þegar "allir" verða heima og horfa á leikinn, ætlum ég,Ebba og Láza að skella okkur í dekur í baðstofuna. Og fá okkur einhvað gómsætt að borða og drekka;)

Svo í kvöld er það afmælis stuð á Skúlagötunni, Davíð hennar Sólu er að fara halda upp á afmæli sitt. Þannig djammí djamm i natten!

Það er ekki nema sólarhringur í að hún Anna Linda komi til landsins....bara skemmtilegir mánuðir framundan!:)

Hvernig ætli það sé að búa í hjólhýsa hverfi í Ameríkunni? Ætli maður myndi sakna íslands?

24. janúar 2007 klukkan 03:42
Já það stefnir allt í að ég sé að fara í "atvinnuviðtal" á morgun.

Svo er ég að fara að gifta mig 3.júli 2009, og auðvitað er öllum boðið.

Annars er voða lítið að frétta nema ég er að fara út á keflavíkurflugvöll á sunnudaginn ef að bílinn minn kemst á stað hjá mér.
Vonum það besta!:)